F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Háaleitisbraut frá Bústaðavegi að Fossvogsvegi. Stígagerð og lagnir, útboð nr. 15265
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 13. júlí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 27. júlí 2021.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2021
Lýsing á verkefninu:
Framkvæmdin felur í sér stígagerð og lagnavinnu vegna nýs göngu- og hjólastígs.
Helstu verkþættir eru:
- Rif núverandi yfirborðs
- Jarðvegsskipti undir stíga
- Gröftur og lagning rafveitu.
- Reising ljósastólpa
- Malbikun
Helstu magntölur eru:
- Upprif malbiks og hellulagnar 1.900 m2
- Gröftur 2.500 m3
- Fylling og söndun 1.850 m3
- Losun á klöpp 1.600 m3
- Malbikun 1.350 m2
- Hellulögn 190 m2
- Þökulögn 1.400 m2
- Raflagnir 780 m
- Uppsetning nýrra ljósastólpa 19 stk
Lok framkvæmdatíma 1. desember 2021