Ráðhústorg verði ,,grænt“ torg með áherslu á gróður, vatn og minni samkomur
Heildarmynd fyrir miðbæ Hafnarfjarðar var kynnt á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í lok síðustu viku. Samkvæmt nýjum tillögum er Thorsplan áfram hugsað sem aðaltorgið í hjarta Hafnarfjarðar og Ráðhústorg, sem í dag er lagt undir bílastæði m.a. fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar, kynnt sem grænt torg með áherslu á gróður, vatn og minni samkomur og viðburði.
Litið er á Ráðhústorg og svæðið í kring sem eitt heildstætt og aðlaðandi svæði sem flæðir saman og tengist litlum og stórum stígum og götum í allar áttir til annarra hverfa. Áhersla er lögð á götulist og tengingar við starfsemi á jarðhæðum.
Á torginu verður góð aðstaða fyrir minni samkomur og vatnsskúlptúr á miðju torgsins er ætlað að hvetja til leikja og samveru hvort sem er á hlýjum sumardegi eða þegar vatnið er þakið klakaböndum um hávetur.
Gömlu húsin á svæðinu munu njóta sín í nýrri götumynd
Kaffihúsið Súfistinn ásamt fyrirhugaðri viðbyggingu mun verða þungamiðjan á Ráðhústorginu og mun viðbygging Súfistans, samkvæmt hugmyndum, verða í anda gamla Hafnarfjarðar en með nútímalegum brag.
Gert er ráð fyrir að viðbyggingin muni hýsa stækkun á veitingarými á jarðhæð með þaksvalir sem snúa að Strandgötu. Gamla hús Súfistans mun áfram njóta sín í götumyndinni. Á 2. og 3. hæð viðbyggingar auk rishæðar núverandi húss er gert ráð fyrir fjórum smáíbúðum.
Nýjar hugmyndir gera jafnframt ráð fyrir að Beggubúð, sem byggð var 1906 og hýsir í dag verslunarminjasafn Byggðasafns Hafnarfjarðar, verði aftur flutt á upprunalega stað sinn á Strandgötunni gegnt Bæjarbíói til að ná enn frekari skírskotun til gamla Hafnarfjarðar.
Lagt er til að byggt verði við Austurgötu 4a í sama stíl. Inngangur inn á Ráðhústorgið með breiðum tröppum sem snúa vel við sólu mun tengjast Austurgötu 8, sem hugsuð er undir þjónustustarfsemi með sólríkri verönd. Veröndin er jafnframt hugsuð sem aðstaða fyrir minni viðburði og mannfagnaði.
Verslunar- og þjónustustarfsemi sem þjónar bænum öllum
Á fundi bæjarráðs í liðinni viku var lögð fram ný tillaga ASK arkitekta að breyttu deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar.
Breytingin nær til reits sem er 7.400 fermetrar að flatarmáli og afmarkast af Strandgötu, Reykjavíkurvegi, Austurgötu og Linnetsstíg. Á miðsvæðum er fyrst og fremst gert ráð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi s.s. verslunum, skrifstofum, þjónustustofnunum, veitinga- og gistihúsum og menningarstofnunum.
Þar sem aðstæður leyfa má gera ráð fyrir íbúðarhúsnæði, sérstaklega á efri hæðum bygginga. Engin hús verða rifin á svæðinu og gert ráð fyrir að ný hús eða viðbyggingar verði reist að Austurgötu 6, Austurgötu 10b, Austurgötu 14-16, Austurgötu 18, Strandgötu 9 og Strandgötu 13.
Bæjarráð Hafnarfjarðar staðfesti á fundi sínum samþykkt skipulags- og byggingarráðs á framlagðri tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Rík áhersla er lögð á að deiliskipulagstillagan verði vel kynnt íbúum þegar þar að kemur.
Ítarlegri gögn er að finna undir fundargerð bæjarráðs – sjá lið nr. 10
Heimild: Hafnarfjörður.is