Torkennilegur hlutur fannst við uppgröft á vinnusvæði á Keflavíkurflugvelli um klukkan 17 í dag.
Samkvæmt heimildum sudurnes.net var umrætt svæði rýmt.
Miklar framkvæmdir standa yfir á flugvallarsvæðinu og eftir því sem sudurnes.net kemst næst munu verktakar hafa grafið niður á torkennilega hluti þannig að vinna var stöðvuð, starfsmönnum gert að yfirgefa svæðið og viðeigandi viðbragðsaðilum gert viðvart.
Rétt er að taka fram að ekki hefur náðst í fulltrúa Isavia, rekstraraðila Keflavíkurflugvallar vegna málsins.
Heimild: Sudurnes.net
Uppfært 23:30 : Talið er að torkennilegur hlutur sem grafið var niður á á vinnusvæði á Keflavíkurflugvelli í dag hafi verið gamalt flugvélaflak.