Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í framkvæmd og fjármögnun verksins „Hringvegur (1) um Hornafjörð“.
Framkvæmdin er í sveitarfélagi Hornafjarðar, Austur-Skaftafellssýslu.
Verkið felst í breyttri legu Hringvegar (1) um Hornafjörð og kemur til með að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi (1) um þrjár og stytta hann um 12 km.
Verktaki skal, auk byggingu mannvirkja, fjármagna verkið að hluta til lengri tíma (20-30 ár). Verktími framkvæmdarinnar er áætlaður allt að þremur árum.
Eftirtaldir aðilar skiluðu inn umsókn um þátttöku í innkaupaferlinu.
Ístak hf., Mosfellsbæ
Þróun og ráðgjöf ehf., ÍAV hf. og Arctica finance hf. fyrir hönd óstofnaðs félags
ÞG verk, Reykjavík
Borgarverk ehf., Borgarnesi