Öll sjöunda hæðin við Bríetartún 9, 105 Reykjavík, er auglýst til sölu á fasteignavef Mbl.
Stærð hæðarinnar er 354 fermetrar en um er að ræða fimm íbúðir með gistileyfi. Íbúðir 701-704 eru með einu svefnherbergi og á bilinu 57,9 til 70 fermetrar að stærð. Íbúð 705 er með tveimur svefnherbergjum og er 97,8 fermetrar að stærð.
Húsið var byggt árið 2018 og samanlagt fasteignamat íbúðanna samkvæmt Þjóðskrá er 222 milljónir króna.
Heimild: Vb.is