Vestmannaeyjahöfn óskar eftir tilboðum í verkið: Vestmannaeyjahöfn: Skipalyftukantur, þekja og lagnir 2021
Helstu verkþættir eru:
- · Rífa rafbúnaðarhús, taka upp malbik og steypta þekju.
- ·Leggja regnvatnslagnir, niðurföll, brunn, vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.
- ·Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik 1900 m².
- · Steypa undirstöður fyrir ljósamastur.
- · Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1100 m².
- · Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 28. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí 202.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.