Ríkiskaup óska eftir tilboðum í Laugaveg 114, 116, 118b og Rauðarásstíg 10, sem hýstu áður Tryggingastofnun og Sjúkratryggingar.
Laugavegur 114, 116 og 118b auk Rauðarástígs 10 hafa verið auglýstir til sölu á Ríkiskaupum og óskað er eftir tilboðum í eignina. Fasteignin hýsti áður Tryggingastofnun ríkisins og Sjúkratryggingar.
Reiturinn er 8200 fermetrar og staðsettur á horni Laugavegar og Snorrabrautar við Hlemm. Þá segir að við Hlemmtorg séu „fyrirhugaðar spennandi breytingar sem auka notkunargildi svæðisins.”
Fasteignin var teiknuð af Gunnlaugi Halldórssyni arkitekt.
Yfirlitsmyndband af húsnæðinu.
Heimild:Vb.is