Opnun tilboða 22. júni 2021. Endurbygging vegkafla ásamt gerð grjótvarnar og lagnavinnu á Tálknafjarðarvegi (617-02) um þéttbýlið á Tálknafirði. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Tálknafjarðarhrepps.
Helstu magntölur í verkinu eru:
– Rif vegyfirborðs 12.200 m2
– Fyllingar og fláafleygar 8.500 m3
– Styrktarlag 7.000 m3
– Burðarlag 1.370 m3
– Malbik 12.000 m2
– Steypt gangstétt 700 m2
– Staðsteyptir kantsteinar 690 m2
– Regnvatnslagnir 530 m
– Grjót í rofvörn 6.800 m3
– Frágangur hliðarsvæða 4.100 m2
Ljúka skal vinnu við lagnir, rofvörn og vinnslu styrktarlas fyrir 1. desember 2021.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2022.