Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur fyrir skömmu var tekin til afgreiðslu fyrirspurn a2f arkitekta ehf., dagsett 17. maí 2021, um breytingu á deiliskipulagi Kringlubæjar 2. áfanga vegna lóðarinnar númer 14 við Ofanleiti (Hamborgarabúlla Tómasar).
Í fyrirspurninni felst niðurrif á núverandi byggingu og í staðinn komi lítið fjölbýlishús ásamt bílakjallara, norðar á lóðinni. Málinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Fram kemur í gögnum málsins að fyrirspurnin er send inn í umboði eigandans, SHP consulting ehf. í Mosfellsbæ. Hugmyndin sé sú að í stað Hamborgarabúllunnar yrði reist lítið íbúðarhús með 6-8 íbúðum ásamt bílakjallara undir húsinu.
Byggingin sem fyrir er yrði rifin og ný bygging reist norðar í lóðinni, nær götunni Ofanleiti. Það væri gert til að skyggja minna á aðliggjandi byggð og skapa skjólgott svæði til suðurs fyrir svalir og verandir, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is