Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið Hverfisgarður við Lynggötu.
Verkið felst í að gera almenningsgarð / leiksvæði á horni Lynggötu og Hellagötu og göngustíg að Dyngjugötu.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur og brottakstur á umfram jarðvegi 300 m2
- Aðflutt fylling 360 m2
- Ljósastólpar 11 stk.
- Steyptir stoðveggir 20 m
- Hellulögn 422 m2
- Tröppur 38 stk.
- Leiksvæði 92 m2
- Leiktæki 4 stk.
- Grasþakning 470 m2
Lokaskiladagur verksins er 15. nóvember 2021.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi hér á vef Garðabæjar.
Tilboð skulu hafa borist bæjarverkfræðingnum í Garðabæ, eigi síðar en fimmtudaginn 24. júní 2021 kl. 11:30, þar sem þau verða opnuð.