Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hrunvarnir í Þvottárskriðum, norðan Hvalness í Lóni.
Um er að ræða uppsetningu á um 385 m af stálþili og 190 m af forsteyptum vegriðseiningum, hreinsun vegrása og gerð skeringa.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar með vegi 7.600 m3
- Fylling 2.150 m3
- Uppsetning á stálþili 385 m
- Forsteyptar vegriðseiningar 190 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 31. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. júní 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.