Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Hringvegar (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn,
Verkið innifelur byggingu brúa á Hverfisfljót og Núpsvötn ásamt endurgerð vegkafla beggja vegna. Að auki er hluti af verkinu gerð áningarstaða við báðar brýrnar.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 1. nóvember 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudaginn 28. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 föstudaginn 25. júní 2021.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Miðvikudaginn 30. júní 2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.