F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Stjörnugróf 7 – 11. Gatna- og stígagerð, útboð nr. 15217
Verkið felst í að útbúa bílastæði í götu móts við Stjörnugróf 7-11 ásamt göngu- og hjólastíg meðfram götunni frá gatnamótum Stjörnugrófar og Traðarlands og áleiðis að Bústaðavegi. Einnig felur verkið í sér gerð gönguþveranna yfir götu, endurnýjun á kansteini, uppsetningu á forsteyptum stoðvegg, gerð lýsingar við stíga og götu og lagningu hitaveitu.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
- Uppgröftur/jarðvegsskipti.
- Jöfnunarlag undir malbik.
- Malbikun stígs og bílastæða.
- Gerð steyptrar stéttar.
- Uppsetning á forsteyptum stoðvegg.
- Hellulögn meðfram stígum, í gönguþverunum og eyjum.
- Uppsetning ljósastaura við stíga og götu.
- Ný niðurföll í götu.
- Gerð snjóbræðslu í stíg.
- Lagning hitaveitu.
Helstu magntölur verksins eru:
- Uppgröftur og brottakstur 2.300 m³
- Aðflutt malarfylling 985 m³
- Malbik 1.500 m²
- Steypa 600 m²
- Forsteyptir kantsteinar 360 m
- Hellur 256 m2
- Þökulögn 800 m²
- Uppsetning ljósastólpa 12 stk
- Forsteyptur stoðveggur 90cm hár 61 m
- Snjóbræðslulagnir ø25 460 m
- Hitaveitulagnir 340 m
Verklok: 31. ágúst 2021.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 26. maí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 9. júní 2021.