Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Faxaflóahafnir undir verksamning við verktakafyrirtækið Klapparverk ehf. um endurnýjun lagna við Faxagarð

Faxaflóahafnir undir verksamning við verktakafyrirtækið Klapparverk ehf. um endurnýjun lagna við Faxagarð

319
0
Mynd: Faxaflóahafnir

Í síðustu viku skrifuðu Faxaflóahafnir undir verksamning við verktakafyrirtækið Klapparverk ehf. um endurnýjun lagna við Faxagarð.

<>

Verkið felur í sér endurnýjun lagna undir bryggjunni og tengingu þeirra við nýja veituhúsið sem reist var árið 2020.

Þetta er síðari áfangi verkefnisins sem boðinn var út í fyrra, þar sem Klapparverk var lægstbjóðandi.

Fyrri áfanginn var unnin í fyrra og þá var húsið tengt við allar veitur í Austurbakkanum. Vinnan fer að mestu leyti fram undir bryggjunni og er að miklu leyti háð sjávarföllum, því um mjög snúið verk að ræða.

Umsamin verklok eru í lok október. Eftirlit með framkvæmdinni er í höndum Verkfræðistofu Suðurnesja líkt og með fyrri áfangann.

Að framkvæmd lokinni verður hægt að afhenda bæði heitt og kalt vatn á bryggjunni.

Heimild: Faxaflóahafnir