Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í :
„Suðurhólar – Gatnagerð og lagnir“
Verkið felur í sér gerð götunnar Suðurhólar frá Austurhólum að Gaulverjabæjarvegi. Jarðvegskipta skal götustæðið, leggja styrktarlag, burðarlag og malbika götuna.
Einnig skal setja upp ljósastaura og leggja ljósastaurastreng.
Að auki skal leggja fráveitu, vatnsveitu, fjarskiptarör og hitaveitu gegnum Austurhóla.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 10.000m³
Styrktarlag 13.200m³
Malbik 4.000m³
Fráveita 40m
Vatnsveita 20m
DN 250 hitaveitulögn 20m
Uppsetning á ljósastaurum 11 stk
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2021.
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:
https://arborg.ajoursystem.is/Tender#/tender/edit/615894dd-8156-437d-a2c6-12c510fdccb4/0
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði.
Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11.00 miðvikudaginn 9. júní 2021
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar