Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Vestursvæði árið 2021.
Helstu magntölur:
- Yfirlögn: 59.300 m2
Verki skal að fullu lokið 15. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 25. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. júní 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.