Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir ganga vel við nýjan íbúðarkjarna á Húsavík

Framkvæmdir ganga vel við nýjan íbúðarkjarna á Húsavík

138
0
Það gengur vel að reisa að Stóragarði 12.

Vel gengur að reisa nýjan íbúðarkjarna fyrir fatlaða að Stóragarði 12 en áætlað er að hann verði tilbúinn í desember næstkomandi.

<>

Trésmiðjan Rein er aðalverktaki við bygginguna.

Húsið er einingarhús sem framleitt er af sænska fyrirtækinu Mjöbäcksvillan fyrir Belkod ehf. á Húsavík sem flytur það inn.

Stórigarður 12 er 470 fermetrar að stærð og er skipt niður í sex íbúðir ásamt sameignarrýmum og starfsmannaaðstöðu.

Eins og fyrr segir ganga framkvæmdi vel og allt á plani eins og Ragnar Hermannsson verkefnastjóri hjá Rein orðaði það í samtali við 640.is

Heimild: 640.is