Ríkiskaup f.h. Isavia ohf óska eftir tilboðum í verkið:
Keflavíkurflugvöllur – Fráveitumannvirki
Dælu- og hreinsistöð – Jarðvinna, burðarvirki, ytri og innri frágangur
Verkið felst í byggingu fráveitumannvirkis sem samanstendur af ca 54m2 kjallara og 72m2 jarðhæð ásamt áföstum steyptum brunnum og breytingum á núverandi útrás og tenging hennar inn í brunnana.
Dælu- og hreinsistöð verður við Djúpavík í Sandgerði. Kjallari og plata yfir eru staðsteypt. Efri hæð og þak eru forsteyptar einingar.
Verki skal að fullu lokið 28. apríl 2016.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is Miðvikudaginn 23. sepember 2015. Tilboð verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska þriðjudaginn 6. október 2015 kl. 14.00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík.