F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Stekkjarbakki – breyting. Gatnagerð, lagnir og stígar. For- og verkhönnun, útboð 15213
Verkið felur í stórum dráttum í sér for- og verkhönnun á gatnagerð, lögnum og göngu- og hjólastígum á svæði við Stekkjarbakka og Höfðabakka.
Þó skal aðeins forhanna færslu skólplagnar. Fyrir liggur frumhönnun á breytingu kanta á Stekkjarbakka og Höfðabakka, færslu skólplagnar og vatnslagna.
Ekki er til frumhönnun á öðrum verkþáttum. Gert er ráð fyrir að verkið verði forhannað og sent í rýni til verkkaupa áður en verkhönnun hefst.
Helstu verkþættir eru:
- Hönnun á breytingum á tveimur gatnamótum við Stekkjarbakka, við Hamrastekk og Höfðabakka.
- Hönnun á einum nýjum gatnamótum við Stekkjarbakka, rétt austan Grænastekks
- Hönnun á aðkomugötum lóða
- Hönnun á göngu- og hjólastígum
- Hönnun á skiltun og yfirborðsmerkingum
- Hönnun lýsingar
- Hönnun bílastæðalóðar
- Hönnun ofanvatnslagna og blágrænna ofanvatnslausna
- Hönnun á vatnsveitulögnum
- Hönnun á skólpheimæðum
- Forhönnun á breyttri legu fráveitulagnar, lagnaleið C í frumhönnun (minnisblað)
- Gerð vinnustaðamerkinga og skipulag umferðar á framkvæmdatíma
- Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlunar
Undanskilið í verkefninu
- Hönnun rafveitu, að undanskilinni staðsetningu ídráttarröra
- Hönnun hitaveitu
- Umsjón með framkvæmdaútboði
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 10:00, þann 19. maí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 3. júní 2021.