Veitur ohf. óskar eftir tilboðum í Reykjastöð, viðhald og endurnýjun 2021 í samræmi við útboðsgögn.
Verkið nær til viðgerða og endurnýjunar á öllum byggingum Reykjastöðvar. Viðgerðir eru að mestu utanhúss en einnig er um að ræða viðgerðir innanhúss í minna umfangi.
Um er að ræða lekaviðgerðir frá þaki, endurnýjun glugga og viðgerðum á gluggum, múr- og steypuviðgerðir, málun og vatnsþétting á niðurgröfnum byggingahlutum.
Útboðsgögn afhent frá : 17.05.2021 kl. 12:00
Opnun tilboða verður þann: 02.06.2021 kl. 14:00
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.