Áætlað er að í Garðabæ verði á næstu árum byggðar yfir 2.300 íbúðir af öllum stærðum og gerðum. Framkvæmdir hefjast í nýjum hverfum á þessu ári og önnur svæði bætast síðan við eftir því sem vinnu við deiliskipulag, gatnagerð og annan undirbúning vindur fram.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að þarna verði fjölbreyttar íbúðir af ýmsum stærðum í fjölbýlishúsum, einbýli, rað- og parhúsum og byggingasvæðin er að finna frá Urriðaholti í suðaustri og út á Álftanes í norðvestri.
Framkvæmdir í Ásahverfi og Álftanesi að hefjast
Gunnar segir að mikið hafi verið byggt í Urriðaholti á undanförnum árum, en uppbygging þar sé langt komin. Þar er áætlað að verði um 1.700 íbúðir og er um 600 þeirra ólokið. Samhliða og í framhaldi af Urriðaholtinu séu framkvæmdir að hefjast við Eskiás/Lyngás í Ásahverfinu miðsvæðis í Garðabæ þar sem verða 276 íbúðir í fyrsta áfanga.
Einnig eru framkvæmdir að hefjast á miðsvæði Álftanes þar sem verða 252 íbúðir í fjölbýli. Þá verða lóðir fyrir parhús í Kumlamýri á Álftanesi auglýstar á næstunni, að sögn Gunnars.
Gatnagerð er lokið við Lyngás og að hluta á Álftanesi. Stöðuna á einstökum svæðum má sjá á meðfylgjandi korti, en byggingasvæði eru ýmist í eigu bæjarins eða einkaaðila.
Unnið er að skipulagsmálum og hönnun gatna í Vetrarmýri og Hnoðraholti norður og reiknað með að lóðir fari í útboð seinna á árinu og á næsta ári.
Í Vetrarmýri er fjölnota íþróttahús risið og er á áætlun að það verði tilbúið til notkunar í desember. Þá má nefna að unnið er að búsetukjörnum með 14-16 íbúðareiningum fyrir fatlað fólk.
Fyrir utan íbúðahúsnæði hafa verið skilgreind svæði fyrir atvinnustarfsemi í aðalskipulagi Garðabæjar.
Á Norðurnesi og í Víðiholti á Álftanesi er gert ráð fyrir 150-160 íbúðum í fjölbýli, einbýli og raðhúsum og er unnið að deiliskipulagi. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær framkvæmdir gætu hafist. Land í Setbergi og Svínholti er ódeiliskipulagt.
Tæplega 18 þúsund íbúar
Íbúar í Garðabæ eru nú rétt tæplega 18 þúsund og fjölgaði um rúmlega eitt þúsund frá 1. desember 2019 til síðustu mánaðamóta.
Á síðasta ári var fjölgunin hlutfallslega mest í Garðabæ í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu eða um 4,5% frá 1. desember 2019 til 1. janúar 2021.
Á sama tíma var hún 4,3% í Mosfellsbæ, 1,5% í Reykjavík, 1,6% í Kópavogi, 1,2% í Kjósarhreppi, en fækkun varð um 1% í Hafnarfirði og 0,2% á Seltjarnarnesi.
Heimild: Mbl.is