Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Urriðaholt – Malbikun gatna 2021
Verkið felst í jarðvegsskiptum, upphækkun brunna og niðurfalla og malbikun gatna í nýju íbúðahverfi í Urriðaholti.
Verkinu skal lokið fyrir 1. september 2021.
Helstu magntölur eru:
- Heflun og þjöppun yfirborðs 12.940 m2
- Efra burðarlag 1.650 m3
- Malbikun 13.340 m2
- Upphækkun á brunnum 102 stk.
- Upphækkun á niðurföllum 17 stk.
Útboðsgögn er hægt að nálgast á vef Garðabæjar, gardabaer.is, þriðjudaginn 11. maí 2021.
Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti á hjá EFLU verkfræðistofu, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 27. maí klukkan 14.00.