Hrunamannahreppur óskar eftir tilboðum í verkið:
Kópsvatn – Garðastígur
Verklok eru 15. júlí 2022.
Verkið felur í sér að leggja hitaveitulögn frá Kópsvatni norðan Flúða, að Garðastíg á Flúðum, ásamt endurgerð á götunni Garðastíg á Flúðum í Hrunamannahreppi.
Verktaki skal jarðvegsskipta götuna samkvæmt kennisniðum þ.e. leggja styrkarlag, burðarlag og malbik á götunna. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, götuljósastrengi og setja upp ljósastaura.
Verkinu er skipt í 2 áfanga.
- áfangi: Leggja DN150 hitaveitulögn frá fyrirhugaðri dælustöð við Kópsvatn, að Garðastíg á Flúðum. Ganga skal frá tengingu við núv. DN80 lögn sem fæðir sumarbústaðabyggð við Ásabyggð, sem og öðrum tengingum á lagnaleiðinni. Fylla skal í lagnaskurði og ljúka yfirborðsfrágangi vegna lagnaskurða.
- áfangi: Leggja skal lagnir í Garðastíg á Flúðum og jarðvegsskipta götu.
Áfanga 1 skal að fullu lokið: 1. október 2021.
Áfanga 2 skal að fullu lokið: 15. júlí 2022.
Verkinu skal að fullu lokið: 15. júlí 2022.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 6.200 m³
Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 5.600 m³
Fráveitulagnir 990 m
Vatnsveitulagnir 520 m
Hitaveitulagnir 5.340 m
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 5 maí 2021. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason hjá Eflu Suðurlandi í síma 412 6900, eða með tölvupósti á netfangið ba@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps Akurgerði 6, 845 Flúðir fyrir kl. 13:00 fimmtudaginn 20. maí 2021, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Sveitarstjórinn í Hrunamannahreppi