Gatnagerð og lagnavinna er að hefjast við Litluhlíð í Hlíðahverfinu. Ný undirgöng og stígar verða gerðir undir Litluhlíð og götunni breytt til hins betra.
Litlahlíð verður lokað föstudaginn 7. maí fyrir umferð vélknúinna ökutækja og verður lokuð meginhluta framkvæmdartímans eða fram í nóvember.
Framkvæmdin felur í sér gerð göngu- og hjólastígs um undirgöng undir Litluhlíð þar sem akreinum fækkar um eina og endurnýjun stofnlagna vatns-, hita-, raf- og fráveitu.
Einnig er gert ráð fyrir gróðursvæðum, landmótun, lýsingu við götu, stíga og í undirgöngum, umferðarljósum, skiltum og merkingum.
Framkvæmdasvæðið mun ná frá gatnamótum Litluhlíðar og Bústaðavegar, norður að Eskitorgi og frá göngu- og hjólastígum sem lagðir voru á síðasta ári, að Skógarhlíð.
Þetta er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Veitna og Vegagerðar. Verktaki er Háfell ehf. og hönnun er unnin af VSÓ Ráðgjöf.
Göngu- og hjólastígur
Hér er um að ræða framhald á lagningu göngu-og hjólastígs sem kominn er meðfram Bústaðavegi og mun svo halda áfram eftir Skógarhlíð.
- Gerð verða undirgöng fyrir gangandi og hjólandi undir Litluhlíð ásamt tengingu stíga við Eskitorg og Bústaðaveg.
- Gerður verður göngu- og hjólastígur sem tengir stíga sem komnir eru við Bústaðaveg við Skógarhlíð.
- Til að undirgöngin verði sem styst verður önnur akbraut Litluhlíðar, þ.e. sú eystri, þrengd í eina akrein og miðeyja mjókkuð.
- Umferðaröryggi gönguleiðar yfir Bústaðaveg verður bætt með því að stýra umferð sem tekur hægribeygju frá Bústaðavegi inn í Litluhlíð með umferðarljósum.
- Sett verður lýsing við götu, stíga og í undirgöngum.
- Breyting verður á umferðarljósum ásamt skiltum og merkingum.
- Veitur endurnýja stofnæðar hitaveitu, vatnsveitu, frárveitu og rafveitu á svæðinu.
- Frágangur umhverfisins með gróðursvæðum og landmótun.
Framhald af verki frá liðnu ári
Þessi framkvæmd er áframhald á verki frá síðasta ári, þar sem lagðar voru nýir göngu- og hjólastígar frá Veðurstofuvegi að Litluhlíð. Á næstu misserum er fyrirhugað að halda áfram með gerð stíga eftir Skógarhlíð.
Reykjavíkurborg og Veitur sendu m.a. íbúum í 105 og hagsmunaaðilum upplýsingapóst um framkvæmdina í byrjun apríl og gera aftur það aftur núna ásamt því að upplýsa með fréttum. Hjáleiðir verða vel merktar, sjá kort.
Tengill – sjá fyrri frétt um málið:
Stígagerð og undirgöng undir Litluhlíð
Framkvæmdasjá Reykjavíkurborgar
Heimild: Reykjavik.is