Opnun tilboða 4. maí 2021. Hafnir Ísafjarðarbæjar óskuðu eftir tilboðum í lengingu Sundabakka. Verkið felur í sér byggingu 380 m stálþilskants ásamt kantbita, pollum og stigum.
Helstu magntölur:
· Reka niður 254 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ28-750 og ganga frá stagbitum og stögum.
· Steypa 99 akkerissplötur
· Steypa um 380m langan kantbita með pollum, kanttré og stigum.
· Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 28.200 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31 .júlí 2022.