Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisnám og vinnslu steinefna námunni Fossamelar í Borgarbyggð.
Helstu magntölur eru:
Klæðingarefni 8/16 mm 5.000 m3
Klæðingarefni 4/8 mm 3.000 m3
Úrharp 0/4 mm 3.000 m3
Burðarlagsefni 0/22 mm 1.500 m3
Berglosun 14.000 m3
Flutningur efnis 20.000 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnudeginum 2. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1. júní 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.