Home Fréttir Í fréttum 18.05.2021 Úlfarsárdalur – Hverfi 1. Yfirborðsfrágangur 2021

18.05.2021 Úlfarsárdalur – Hverfi 1. Yfirborðsfrágangur 2021

237
0
Úlfársardalur Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:

<>

Úlfarsárdalur – Hverfi 1. Yfirborðsfrágangur 2021, útboð nr. 15193

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst m.a. í því að jafna undir gangstéttar, leggja snjóbræðslu, reisa ljósastólpa, steypa kantsteina, steypa gangstéttar, steypa tröppur, steypa stoðveggi, malbika, leggja hellur, þökuleggja og ganga frá gróðursvæðum.

Helstu magntölur eru:

 

Gröftur                       650 m3
Fylling                        530 m3
Afrétting                   3690 m2
Snjóbræðluslöngur     5200 m
Steypumót                 313 m2
Bendistál                  4400 kg
Steinsteypa                 50 m3
Malbikun                   885 m2
Kantsteinn                474 m
Steypt stétt              730 m2
Hellulögn                1230 m2
Þökulögn                1367 m2

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 4. maí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 18. maí 2021.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2021