F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Bryggjuhverfi vestur, Landfylling, útboð nr. 15201
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í gerð landfyllinga, farghauga og varnargarðs fyrir vesturhluta Bryggjuhverfis, ásamt tilfærslu á farghaugum innan svæðisins. Einnig skal fjarlægja núverandi hafnarbakka.
Helstu magntölur eru:
Móttaka efnis í varnargarð: 20.000 m3
Efni í landfyllingu: 150.000 m3
Efni í farghauga: 170.000 m3
Fjarlægja hafnarbakka: 400 m2
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 4. maí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar enn Kl. 11:00, 25. maí 2021.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2021