Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með breikkun Hringvegar (1) um Kjalarnes í 2+1 veg frá Vallá að Hvalfirði.
Um er að ræða um 5,5 km langan vegkafla með hringtorgum við Móa og Dalsmynni, nýjum undirgöngum við Grundarhverfi og Arnarhamar, lengingu á undirgöngum við Vallá, nýtt stálplöturæsi/brú yfir Ártúnsá við Bakkaveg, lengingu á stálplöturæsi/brú yfir Ártúnsá við Hringveg auk hliðarvega, stíga og veitukerfa.
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Eftir lok tilboðsfrests, 23. apríl 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.
Þann 28. apríl 2021 var verðtilboð hæfra bjóðenda opnað. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.