F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Laugardalshöll, endurnýjun gólfs, útboð nr. 15189
Endurnýjun á gólfi Laugardalshallar, skal vera parketgólf úr 20-22mm gegnheilum fyrsta flokks Hlyn á gelpúðum.
Gólfið er byggt upp sem parketgólf sem neglist á tvöfalt lag af krossviði ofan á kubba sem eru lagðir að jafnaði með 300mm millibili í báðar áttir með gelpúðum neðan á. Undir gólfið skal kemur rakavörn á steypta plötu og steinullareinangrun í bilið þar á milli.
Parketgólfið skal vera frá viðurkenndum framleiðanda.
Helstu magntölur verksins eru:
Verkþáttur Ein. Magn
Íþróttagólf á gelpúðum m2 1550
Einangrun m2 1550
Íþróttavallamerkingar stk 12
Festingar í íþróttagólf stk 66
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 26. apríl 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 11:00, 12. maí 2021.