Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sementsfestun og þurrfræsingu á Austursvæði 2021.
Áætlaðar magntölur:
Festun með sementi 48.700 m2
Þurrfræsing og jöfnun 2.800 m2
Tvöföld klæðing 51.500 m2
Efra burðarlag afrétting 1.540 m3
Verkinu skal að fullu vera lokið 1. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 20. apríl 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. maí 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.