Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ 2021-2022.
Um er að ræða verk til tveggja ára og felst í viðgerðum á steyptum gönguleiðum víðsvegar í Garðabæ.
Helstu magntölur fyrir hvert ár samningtímans eru:
- Upprif á steyptri stétt 600 m2
- Gröftur 100 m3
- Fylling 100 m3
- Steypt stétt 750 m2
- Þökulögn 100 m2
Útboðsgögn er hægt að nálgast hér á vefsíðu Garðabæjar.
Tilboðum skal á netfangið utbod@mannvit.is fyrir kl. 11:00 þann 29. apríl 2021.
Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.