Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna – Raflagnir
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna – Raflagnir
Verkið felst í að þjónusta tilfallandi raflagnavinnu á vegum sveitarfélagsins. Um er að ræða rammasamning við allt að þrjá aðila til að leysa tilfallandi viðhalds- og þjónustuverkefni fyrir mannvirki bæjarfélagsins.
Helstu magntölur eru:
· Tímavinna, 1.320 klst. á samningstímanum.
Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi á vefsíðu Garðabæjar.
Helstu dagsetningar:
- Afhending tilboða fyrir kl 14:30 27. apríl 2021.
- Upphaf samnings 1.ágúst 2021.
Samningstími er tvö ár með mögulegum framlengingum tvisvar sinnum til tveggja ára í senn.
Tilboð skal afhenda á skrifstofu Strendings ehf, verkfræðiþjónustu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 14:30 þriðjudaginn 27. apríl 2021. Tilboð verða opnuð á rafrænum opnunarfundi sama dag kl 15:00
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar.