Ríkiskaup hefur fyrir hönd Vegagerðarinnar boðið til opinnar hönnunarsamkeppni um útlit og hönnun brúar yfir Fossvog.
Brúin er ætluð fyrir gangandi, hjólandi og umferð almenningsvagna yfir Fossvog, frá flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar vestan Nauthólsvíkur yfir á norðausturhluta Kársnestáar. Svæðið sem samkeppnin tekur til þekur um 4,9 hektara lands á sjó og landi.
Gert er ráð fyrir að brúin verði 270 metra löng með landfyllingum beggja vegna. Þegar framkvæmdin var samþykkt í borgarráði í nóvember 2018 kom fram að markmiðið með brú yfir Fossvog á milli Reykjavíkur og Kópavogs væri að styðja við vistvæna samgöngukosti á svæðinu.
Jafnramt yrði brúin til að stytta ferðalengdir, dreifa umferðarálagi og styðja við aðra ferðamáta en einkabílinn.
Heimild: Ruv.is