Þorpið vistfélag hefur lokið úthlutun síðustu fimmtíu íbúða félagsins í Gufunesi í samstarfsverkefni félagsins og Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.
Tæplega fjórir umsækjendur voru um hverja íbúð sem úthlutað var en dregið var á milli þeirra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þorpinu vistfélagi. Alls byggir Þorpið 137 íbúðir á svæðinu sem eru þær fyrstu í nýjasta hverfi borgarinnar í Gufunesi. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í júní en allar íbúðir félagsins hafa nú verið seldar.
Allar íbúðir Þorpsins eru seldar á föstu verði sem er töluvert lægra en almennt gerist um nýbyggingar í Reykjavík. Kostnaðurinn var á bilinu 19-37 milljónir króna.
Byggð Þorpsins í Gufunesi er brotin upp í þriggja til fimm hæða þyrpingu íbúðarhúsa sem hverfist um miðlægt torg og garða.
„Áhersla er á vandaða hönnun og góða rýmisnýtingu íbúðanna sem eru af fjórum gerðum; stúdíó, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Byggðin hefur létt yfirbragð og er fjölbreytt í lita- og efnisvali,“ segir í tilkynningu Þorpsins.
„Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll, boltavelli og grasfleti. Torgið verður við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa, kaffihús, vinnurými, pósthús og þvottahús. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni þar sem gert er ráð fyrir sparkvelli og götuboltasvæði.
Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.
Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma. Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar til afnota fyrir íbúa til ræktunar. Þar verður heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli.“
Tilgangur Þorpsins er að þróa og byggja fasteignir og byggingarlausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki þar sem áhersla er lögð á hagkvæmni í byggingarkostnaði, grænar lausnir, deililausnir og vistvænt umhverfi.
Heimild: Visir.is