Fyrir hönd Sveitafélagsins Garðabæjar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Álftanes, Miðsvæði, Svæði 1 – Breiðamýri – Skólpdælustöð – Umsjón og eftirlit verkframkvæmda.
Nýsamþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á níu 1-3 hæða fjölbýlishúsakjörnum á um 10,9 hektara svæði.
Ný verkframkvæmd felur í sér uppbyggingu á nýju fráveitukerfi svæðisins og er bygging skólpdælustöðvarinnar hluti af því. Ný dælustöð leysir af núverandi skólpdælustöð sem verður aftengd og rifin.
Helstu magntölur og verkþættir eru:
- Jarðvinna
- Gröftur 4.550 m3
- Fylling 2.250 m3
- Burðarvirki
- Steinsteypa 125 m3
- Steinsteypumót 675 m3
- Járnbending 21.000 kg
- Stálvirki, vinnupallar og lok 1.200 kg
- Fráveita
- Fráveitulagnir 80 m
- Vélbúnaður
- Uppsetning á skólpdælum 2 stk
- Uppsetning og smíði á pípum
- Rafbúnaður og raflagnir
- Frárennslis-, neysluvatns- og hitalagnir
- Loftræsikerfi
- Innan- og utanhúsfrágangur
- Fullnaðarfrágangur á lóð
Útboðsgögn má nálgast á útboðsvef Garðabæjar frá og með miðvikudeginum 31. mars.
Tilboð verða opnuð á hjá Verkís verkfræðistofu, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, fimmtudaginn 15. apríl 2021, kl. 10.00 og skulu tilboð send inn með rafrænum hætti.