Alls verða fimm grunn- og leikskólalóðir endurgerðar en framkvæmdir fara að einhverju leyti fram í áföngum. Endurgerð felur í sér endurskipulagningu og endurnýjun lóðar.
Endurgerð leikskólalóða
- Hálsaskógur – Borg
- Klambrar, 1. áfangi
- Mánagarður
- Vesturborg, 1, áfangi
Endurgerð grunnskólalóðar
- Breiðholtsskóli, 2. áfangi
Ennfremur verður farið í átaksverkefni á níu leikskólalóðum en þær eru: Dalskóli (eldri hluti), Fífuborg, Klettaborg, Langholt-Sunnuborg, Laugasól-Lækjarborg, Lyngheimar, Nes-Hamar, Sunnufold-Frosti og Sunnufold-Logi.
Til viðbótar verður farið í átaksverkefni á eftirfarandi fjórum grunnskólalóðum en þær eru: Engjaskóli, Melaskóli, Selásskóli og Víkurskóli.
Átaksverkefni eru á lóðum þar sem skipulag er í lagi en verið er að styrkja eða endurnýja einstök svæði innan lóðar. Á þessum lóðum verða leiktæki endurnýjuð á hluta leiksvæða og öryggismöl skipt út með nýju fallvarnarefni og/eða gervigrasi.
Áður hefur verið greint frá því að opin leiksvæði verði endurgerð á sjö stöðum í borginni í ár fyrir 120 milljónir króna.
Skoða pdf-skjal með ýtarlegri upplýsingum og myndum.
Heimild: Reykjavikurborg