Úr fundargerð bæjarráðs Kópavogs 25.03.2021
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 11. mars, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna byggingar nýs Kárnesskóla þar sem lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Rizziani de Eccher.
Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum þann 18. mars sl.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Heimild: Kópavogur.is