Vinna við uppsteypu er í fullum gangi í grunni meðferðarkjarnans við Landspítala. Búið að steypa fyrstu undirstöður.
Helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypuna eru áframhaldandi þrif á klöpp og þrifalagssteypur.
Vinna við mótauppslátt og járnabendingu undirstaðna er í fullum gangi og fyrstu undirstöðurnar voru steyptar í síðustu viku.
Samhliða þessu er vinna við jarðskaut og fljótlega mun svo vinna við fyllingar og lagnir hefjast, segir Eysteinn Einarsson staðarverkfræðingur hjá NLSH.
Heimild: NLSH.is