Vegagerðin óskar eftir tilboðum í framleiðslu og flutning á steyptum niðurrekstrarstaurum fyrir brú á Núpsvötn á Hringvegi (1).
Helstu magntölur eru:
- Áætluð heildarlengd niðurrekstrarstaura 4.400 m
- Flutningur: 802 tonn
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 22. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. apríl 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.