Home Fréttir Í fréttum 29.09.2015 Endurbætur á Biskupstungnabraut (35) sunnan Reykjavegar

29.09.2015 Endurbætur á Biskupstungnabraut (35) sunnan Reykjavegar

173
0
Biskupstungnabraut (35)

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í styrkingu á 2,5 km Biskupstungnabrautar sunnan Reykjavegar, ásamt útlögn klæðingar og frágangi.

<>

Helstu magntölur eru:

Fláafleygar                   7.655 m3

Þurrfræsun                 17.880 m2

Neðri burðarlög            6.870 m3

Ræsi                                 30  m

Efra burðarlag              3.325 m3

Tvöföld klæðing        20.605 m2

Frágangur fláa            20.655 m2

Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 2016.

Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 15. september 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 krónur.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. september 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.