Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir í Dalvíkurbyggð.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
Lenging sjóvarnar um 105 m framan við fjárhús við Brimnes á Árskógsströnd.
Gerð 80 m langrar sjóvarnar norðan við Hauganes.
Útlögn á kjarna og grjóti úr námu um 2.500 m3
Útlögn fyllingarefnis úr fjöru 315 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 20.desember 2015.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með
þriðjudeginum 15.september 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29.september 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.