Umhverfis- og framkvæmdasvið Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum í uppsteypu dæluhúss ásamt uppsetningu stjórn- og dælubúnaðar fyrir snjóbræðslukerfi í þrjár götur í Skarðshlíð og lagningu snjóbræðslustofnlagna að dæluhúsinu.
Helstu magntölur eru:
- Veggjamót 70 m2
- Járnbending 860 kg.
- Steypa 15 m3
- Stofnlagnir snjóbræðslu 550 m
- Malbikun í þveranir 120 m2
- Þökulögn og gróðurbeð 800 m2
Útboðsgögn verða seld hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði, Norðurhellu 2, frá og með mánudeginum 15. mars 2021. Verð kr. 3.000,-
Tilboðum skal skilað á sama stað, fyrir klukkan 11:00 miðvikudaginn 7. apríl 2021 og verða opnuð þar kl. 11:00 sama dag að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Verklok eru 15. ágúst 2021.