Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum frá hönnunarhópum í verkið “Knatthús Hauka- Hönnunarútboð”
Verkið nær til hönnunar á knatthúsi sem er 82,5 á breidd og 120 m á lengd ásamt þjónustubyggingu með búningsklefum og tengdum rýmum alls 840 m2.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með mánudeginum 1. mars 2021 í gegnum útboðsvefinn: www.tendsign.is.
Tengiliður vegna útboðs ef einhverjar spurningar vakna er Sigurður Haraldsson: siggih@hafnarfjordur.is
Tilboðum í verkið skal skila í síðasta lagi 26. mars 2021 kl. 14:00 á útboðsvef verksins.