Veitur óska eftir tilboðum í verkefnið “Akranes – Þjóðbraut – Lagnir 2021″.
Í verkefninu felst lagning nýrra lagna vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og gagnaveitu við Þjóðbraut á Akranesi.
Verktaki grefur fyrir lögnum, sandar skurðbotn, leggur lagnir, sandar lagnir, lokar og gengur frá skurðstæði.
Leggja á lagnir meðfram Þjóðbraut frá hringtorgi við Innnesveg að hringtorgi við Garðabraut. Vinna á verkið frá Innnesveg að Garðabraut.
Opnun tilboða: | 09.03.2021 kl. 11:00 |
Frekari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem birt hafa verið án endurgjalds á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.