Vegagerðin óskar eftir tilboðum í styrkingu og malbikun á Laugarvatnsvegi (37) í Bláskógabyggð. Kaflinn er um 3,1 km langur frá gatnamótum Reykjavegar að bænum Brekku.
Helstu magntölur eru:
- Fláafleygar 2.250 m3
- Ræsi 18 m
- Styrktarlag 0/63 595 m3
- Burðarlag 0/22 2.040 m3
- Malbik 60 mm 24.960 m2
- Frágangur fláa 19.070 m2
Verklok eru 1. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 22. febrúar 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. mars 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.