Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum verktaka í verkið:
Sólvangur eldri bygging, endurbætur á 2. – 4. hæð
Á 2. hæð byggingarinnar á innrétta nýtt 11 íbúða hjúkrunarheimili. Á 3. og 4. hæð verður aðstaða fyrir hvíldarinnlagnir á að gera breytingar á innra skipulag og endurnýja búnað á þeim hæðum.
Helstu stærðir:
- Hver er hæð er um 650 fermetrar að frádregnu stigahúsi.
Helstu verkþættir:
- Rif innveggja og nauðsynlegar stálstyrkingar.
- Endurnýjun allra yfirborðsefna innanhúss og hluta hurða.
- Yfirbygging á 6 svölum og bygging einna nýrra.
- Endurnýjun og viðbætur tæknikerfa, þ.e. lagna, loftræsingar og rafkerfa.
- Sett vatnsúðakerfi á allar 3 hæðirnar.
Vakin er athygli á að á 1. hæð hússins er rekin starfsemi sem taka þarf tillit til við framkvæmdina.
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 23. febrúar 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 10:00 þriðjudaginn 16. mars 2021.