Tillaga arkitektastofunnar Kurtogpí bar sigur úr býtum í samkeppni um nýjar byggingar á Kirkjusandi.
Þær koma í stað Íslandsbankahússins sem stendur á lóðinni. Húsið verður rifið en það var dæmt ónýtt vegna rakaskemmda.
Vinningstillagan verður unnin áfram sem nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjusand 2, lóð A á Kirkjusandsreit.
Fimm byggingar munu rísa á reitnum. Aðalbyggingin, næst Sæbraut, verður sjö hæðir og útlit hennar minnir á Íslandsbankahúsið, sem nú stendur á reitnum.
Samkeppnin var lokuð framkvæmdakeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Verkkaupi var fjárfestingasjóðurinn Langbrók sem er lóðarhafi á Kirkjusandi 2.
Forsögn samkeppninnar var unnin í samstarfi við skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Langbrók er í stýringu hjá Íslandssjóðum, að því er fram kemur í umfjöllun um áform þessi í Morgunblaðinu í síðustu viku.
Heimild: Mbl.is