Hlutafé Íslenskra aðalverktaka var hækkað um tæplega 2,2 milljarða króna undir lok síðasta árs.
Hlutafé Íslenskra aðalverktaka hf. (ÍAV) var hækkað um tæplega 2,2 milljarða króna undir lok síðasta árs. Hækkunin fór fram með umbreytingu láns frá Marti Iceland (Pty) ehf., eiganda allra hluta í ÍAV, í hlutafé og á genginu 1,0 á hlut.
Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár var um að ræða erlenda kröfu á hendur ÍAV sem Marti Iceland tók yfir í september á síðasta ári.
Hagnaður ÍAV hefur verið fremur lítill sé miðað við umsvif félagsins undanfarin tvö ár, eða 40 milljónir árið 2019 og 6 milljónir árið 2018. Velta ÍAV jókst úr ríflega 14 milljörðum króna í 17,7 milljarða milli áranna 2018 og 2019.
Í árslok 2019 nam eigið fé félagsins ríflega milljarði, skuldir um 3,6 milljörðum og eignir félagsins um 4,7 milljörðum króna.
ÍAV hefur verið í eigu svissneska verktakafyrirtækisins Marti Holding AG frá árinu 2010, sem Marti-fjölskyldan á og stýrir líkt og Frjáls verslun fjallaði um nýlega.
Heimild: Vb.is