Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir við Grenivík. Verkið felst í endurröðun og lengingu á núverandi sjóvörn, heildarlengd um 200 m.
Helstu magntölur:
- Lagfæring eldri sjóvarnar, upptekt og endurröðun grjóts um 400 m3 á 50 m kafla.
- Lenging sjóvarnar um 150 m, grjót úr námu alls um 2250 m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. ágúst 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 8. febrúar 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. febrúar 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.